Eðvald Einar í stjórn Visku
Reynsla - réttindi - þjónusta

Með 20 ára reynslu sem opinber starfsmaður sem hefur starfað á bæði litlum og stórum vinnustöðum býð ég mig fram til stjórnar Visku. Ég vil leggja mitt af mörkum til að halda áfram að byggja upp og skapa sterkt stéttarfélag fyrir háskólamenntaða. Ég vil félag sem beitir sér af styrk fyrir betri kjörum, góðri þjónustu og umfram allt félag sem stendur með sínu félagsfólki og skapar sterka rödd í samfélagslegri umræðu því til heilla.
Um mig
Ég starfa sem verkefnastjóri hjá Landspítalanum sem er einn fjölmennasti vinnustaður landsins. Áður starfaði ég sem sérfræðingur hjá umboðsmanni barna, sem er mjög fámenn ríkisstofnun og þó svo að verkefnin séu sambærileg þá bý ég vel að hafa bæði starfa á mjög litlum vinnustað og á mjög stórum. Það hefur m.a. kennt mér að þótt vinnustaðir séu ólíkir þá eru þarfir starfsfólks oftast þær sömu: sanngjörn kjör, skýr réttindi, virðing í samskiptum og öryggi í starfi.
Á litlum vinnustað finnur fólk oft sterkt fyrir því þegar eitthvað skortir, hvort sem það er stuðningur, skýr ferli eða aðgengi að ráðgjöf. Á stórum vinnustað geta áskoranirnar verið aðrar, til dæmis flóknari boðleiðir, meiri fjarlægð milli fólks og hætta á að einstaklingurinn týnist í kerfinu. Ég þekki báðar hliðar og tel það vera dýrmæta reynslu inn í starf stjórnar Visku.
Á þessum tíma hef ég einnig kynnst því af eigin raun hversu mikilvægt það er að starfsfólk búi við góð kjör, njóti skýrra réttinda og hafi sterkan bakhjarl þegar á reynir. Ég veit hve mikilvægt það er fyrir félagsfólk að búa að góðum styktar- og starfsþróunarsjóðum í gegnum sitt félag því öll þurfum við einhvern tímann á einhverju að halda, hvort sem það eru gleraugu, sálfræðitímar eða tækifæri til að efla starfsþróun sína eða endurmenntun.
Ég hreinlega brenn fyrir kjara- og réttindamálum háskólamenntaðs starfsfólks og vil leggja mitt af mörkum til að þau mál séu ávallt í forgrunni. Þess vegna býð ég mig fram til stjórnar Visku og legg fram mína krafta í ykkar þágu.

Mandla styður þetta framboð og horfir bjartsýn til betri tíma
Menntun

Ég hef aflað mér margvíslegrar menntun og hef viðeigandi námslán á bakinu.
Ég er með B.A. í uppeldis- og menntunarfræði frá Háskóla Íslands, M.A. í Menningarstjórnun frá háskólanum á Bifröst og viðbótar diplóma í Hagnýtri jafnréttisfræði frá Háskóla Íslands. Allt menntun sem hefur reynst mér vel í öllu því starfi sem ég hef tekið að mér sem og í lífinu sjálfu.
Mandla með Árnagarð í baksýn